Alfreð fiskaði víti og skoraði sjálfur úr því

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð fagnar marki sínu.
Alfreð fagnar marki sínu. vísir/getty
Alfreð Finnbogason var á skotskónum þegar Augsburg bar sigurorð af Werder Bremen, 0-3, á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Augsburg sem hafði ekki unnið í fjórum leikjum í röð fyrir leikinn í dag.

Michael Gregoritsch kom Augsburg yfir á 40. mínútu. Þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik fiskaði Alfreð vítaspyrnu.

Landsliðsframherjinn fór sjálfur á punktinn og skoraði af öryggi. Þetta var fimmta mark Alfreðs í þýsku deildinni en aðeins Robert Lewandowski og Pierre-Emerick Aubameyang hafa skorað meira (10).

Gregoritsch skoraði sitt annað mark á 61. mínútu. Á 70. mínútu fékk Alfreð dauðafæri en skallaði framhjá. Skömmu síðar var hann tekinn af velli.

Fleiri urðu mörkin ekki og Augsburg fagnaði 0-3 sigri. Liðið er í 9. sæti deildarinnar með 15 stig.

Aron Jóhannsson var ekki í leikmannahópi Bremen sem er í sautjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins fimm stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira