Formúla 1

Valtteri Bottas og Daniel Ricciardo fljótastir á föstudegi í Mexíkó

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Valtteri Bottas var snöggur á föstudegi í Mexíkó.
Valtteri Bottas var snöggur á föstudegi í Mexíkó. Vísir/Getty
Valtteri Bottas á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir mexíkóska kappaksturinn í Formúlu 1. Daniel Ricciardo á Red Bull var fljótastur á seinni æfingu dagsins.

Fyrri æfingin

Bottas var fljótastur og Hamilton annar, báðir á últra-mjúkum dekkjum. Margir ökumenn áttu erfitt með að fóta sig á rykugri brautinni.

Max Verstappen á Red Bull var þriðji og liðsfélagi hans Daniel Ricciardo varð fjórði. Ferrari ökumennirnir, Sebastian Vettel og Kimi Raikkonen voru í fimmta og sjötta sæti. Báðir Ferrari ökumennirnir misstu bílana sína út fyrir braut á æfingunni. Bæði Red Bull og Ferrari mennirnir voru á ofur-mjúkum dekkjum. Harðari gerð en Mercedes.

Varaökumenn voru mikið að spreyta sig á æfingunni. Antonio Giovinazzi og Charles Leclerc, sem eru á mála hjá Ferrari fengu tækifæri á æfingunni, annar á Haas bíl og hinn á Sauber bíl. Sean Geael fékk tækifæri í Toro Rosso bílnum og Alfonso Celis Jr. fékk að spreyta sig á Force India bílnum.

Daniel Ricciardo kemur inn í leikvanginn á æfingu í Mexíkó.Vísir/Getty
Seinni æfingin

Ricciardo var fljótastur en Hamilton varð annar líkt og á fyrri æfingunni. Hamilton tók léttan snúning á æfingunni en rétt náði að stöðva bílinn áður en hann endaði á varnarvegg.

Verstappen var þriðji hraðasti ökumaðurinn á æfingunni en hann missti af megninu af henni vegna vélavandræða. Vettel var fjórði en þurfti að hætta við eina tilraun sína þegar slökkvitæki í Ferrari bílnum fór í gang.

Munurinn á eftstu mönnum var mjög lítill. Fyrstu sex voru allir á sömu hálfu sekúndunni. Það má því vænta þess að tímatakan verði æsispennandi í Mexíkó á eftir.

Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 17:50 í dag, laugardag á Stöð 2 Sport 4. Útsending frá keppninni hefst klukkan 18:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport 3.

Hér að neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Titillinn réðst í Texas

Lewis Hamilton vann sinn fimmta kappakstur í Texas, einungis sex Formúlu 1 keppnir hafa farið fram þar svo hann er klárlega fógetinn í Texas.

Daniil Kvyat á ekki afturkvæmt til Red Bull

Helmut Marko, ráðgjafi Red Bull liðsins segir að rússneski Formúlu 1 ökumaðurinn Daniil Kvyat eigi ekki afturkvæmt til liðs við Red Bull eða Toro Rosso.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×