Enski boltinn

Birkir ónotaður varamaður í baráttunni um Birmingham

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Birkir fékk ekki að spreyta sig í grannaslagnum
Birkir fékk ekki að spreyta sig í grannaslagnum vísir/getty
Birkir Bjarnason kom ekki við sögu þegar Birmingham og Aston Villa áttust við í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Skemmst er frá því að segja að leiknum lauk með markalausu jafntefli í fremur bragðdaufum leik.

Birkir hefur spilað samtals 168 mínútur með Villa í deildinni í vetur en liðið er í sjötta sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Sheffield United.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×