Sport

Hrafnhildur náði EM-lágmörkum í fjórum greinum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hrafnhildur er búin að tryggja sér þátttökurétt í fjórum greinum á EM í Danmörku í desember.
Hrafnhildur er búin að tryggja sér þátttökurétt í fjórum greinum á EM í Danmörku í desember. vísir/stefán
Hrafnhildur Lúthersdóttir náði lágmörkum í fjórum greinum fyrir EM í sundi sem fer fram í Danmörku í desember.

Hrafnhildur var í góðum gír á Extramóti SH og náði EM-lágmarki í 50, 100 og 200 metra bringusundi og 100 metra fjórsundi. Hún var aðeins 0,06 sekúndubrotum frá Íslandsmeti sínu í 50 metra bringusundi.

Tólf sundmenn náðu lágmörkum fyrir Norðurlandameistaramótið sem haldið verður í Reykjavík í byrjun desember. Nöfn þeirra má sjá hér fyrir neðan.

Már Gunnarsson, ÍRB, setti tvö ný ÍF-Íslandsmet í flokki S13 í 50 metra baksundi (0:33,73) og 200 metra baksundi (2:32,37).

Sundfélag Hafnarfjarðar vann til flestra verðlauna á mótinu (35 gull, 22 silfur og 28 brons). Sunddeild Breiðablik kom næst þar á eftir (23-22-19) og Íþróttabandalag Reykjanesbæjar varð í 3. sæti (23-22-19).

Stigahæstu sundmennirnir voru Hrafnhildur Lúthersdóttir í 50 metra bringusundi á 0:30,53 (825 stig) og Aron Örn Stefánsson í 100 metra skriðsundi á 0:49,97 (727 stig).

EM lágmörk:

Hrafnhildur Lúthersdóttir í 50, 100 og 200m bringsund og 100m fjórsund

NM lágmörk:

Kristinn Þórarinsson í 50 og 100m baksund, 200m fjórsund

Aron Örn stefánsson í 50, 100 og 200m skriðsund

Kolbeinn Hrafnkelsson í 50 og 100m baksund

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson í 50 og 100m baksund

Predrag Milos í 50m baksund, 50 og 100m skriðsund

Brynjólfur Óli Karlsson í 50, 100 og 200m baksund

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, 100m skriðsund

Katarína Róbertsdóttir í 50m baksund

Bryndís Bolladóttir í 400m skriðsund

Patrick Viggo Vilbergsson í 400m skriðsund

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir í 100m baksund og 50m flugsund

Níu mótsmet voru sett:

Hrafnhildur Lúthersdóttir (100m fjór, 50, 100 og 200m bringa)

Aron Örn Stefánsson (50, 100 og 200m skriðsund)

Kristinn Þórarinsson (100m fjórsund)

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir (50m flugsund)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×