Sport

Landsliðshópurinn í badminton tilkynntur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Íslandsmeistararnir í einliðaleik 2016, Kári Gunnarsson og Margrét Jóhannsdóttir eru í hópnum
Íslandsmeistararnir í einliðaleik 2016, Kári Gunnarsson og Margrét Jóhannsdóttir eru í hópnum mynd/margrét gunnarsdóttir/bsí
Íslensku landsliðin í badminton, bæði karla og kvenna, eru á leið á Evrópukeppnina sem fram fer í Kazan í Rússlandi í febrúar á næsta ári.

Keppnin er spiluð í riðlum og komast sigurvegarar riðlanna á Heimsmeistarakeppni landsliða í Tælandi í lok maí 2018.

Tinna Helgadóttir, landsliðsþjálfari, hefur valið landsliðshópa Ísland.

Karlalandsliðið er skipað þeim Daníel Jóhannessyni, Davíð Bjarna Björnssyni, Kára Gunnarssyni og Kristófer Darra Finnssyni.

Í kvennalandsliðinu eru Arna Karen Jóhannsdóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Sigríður Árnadóttir og Þórunn Eylands.

Allir koma keppendur Íslands frá TBR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×