Sport

Eigandi Cowboys hlýðir Trump í einu og öllu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jones spjallar hér við stjörnuhlaupara Kúrekanna, Ezekiel Elliott.
Jones spjallar hér við stjörnuhlaupara Kúrekanna, Ezekiel Elliott. vísir/getty
Donald Trump Bandaríkjaforseti fór á dögunum við stríð við NFL-deildina er hann krafðist þess að leikmenn sem standa ekki meðan þjóðsöngurinn sé spilaður yrðu reknir úr deildinni.

Þessi harða krafa forsetans hafði í fyrstu þau áhrif að fleiri lið og leikmenn stóðu saman í sínum mótmælum.

Trump vildi að eigendur liðanna myndu taka hart á þessu og hinn umdeildi eigandi Dallas Cowboys, Jerry Jones, hefur ákveðið að fara að fyrirmælum forsetans.

Þeir leikmenn Cowboys sem standa ekki í þjóðsöngnum munu ekki fá að spila. Punktur.

Þarna þykir mörgum sem eigandinn sé að brjóta á rétti leikmanna að tjá sig og það verða líklega enn meiri læti í kringum Kúrekanna næstu vikur út af þessu máli.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×