Fótbolti

Bandaríkjamenn töpuðu fyrir neðsta liðinu og Aron missir af HM í Rússlandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Bradley, fyrirliði bandaríska landsliðsins, gengur vonsvikinn af velli í nótt.
Michael Bradley, fyrirliði bandaríska landsliðsins, gengur vonsvikinn af velli í nótt. Vísir/Getty
Aron Jóhannsson og félagar hans í bandaríska landsliðinu verða ekki með á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem fer fram í Rússlandi næsta sumar.

Aron valdi að spila fyrir bandaríska landsliðið fyrir HM 2014 í Brasilíu en nú fjórum árum seinna er íslenska landsliðið á leið á HM á sama tíma og Bandaríkjamenn sitja heima.

Bandaríkjamenn byrjuðu kvöldið í þriðja og síðasta sætinu sem gaf farseðil á HM úr Norður- og Mið-Ameríkuriðlinum en töpuðu 2-1 á móti Trínidad og Tóbagó og enduðu í fimmta sæti riðilsins. Þeir misstu því ekki aðeins af því að tryggja sig strax inn á HM heldur einnig af möguleikanum að komast til Rússlands í gegnum umspil.

Mexíkó og Kosta Ríka voru áður búin að tryggja sér sæti á HM en barist var um þriðja og síðasta sætið í nótt. Fjórða sætið gaf síðan sæti í umspili um laust sæti.

Panama verða með á HM í fyrsta sinn en umdeilt sigurmark á 88. mínútu tryggði Panama 2-1 sigur á Kosta Ríka og þar með þriðja og síðasta sætið úr Norður- og Mið-Ameríkuriðlinum sem gefur farseðil á HM í Rússlandi.



Markið sem kom Panama á HM skoraði Gabriel Torres en það leit þó út fyrir að boltinn hafi aldrei farið yfir marklínuna. Ronald Matarrita virtist hafa bjargað á linu en dómarinn, Walter Lopez frá Gvatemala, dæmdi hinsvegar mark.

Bandaríkjamenn duttu alla leið niður í fimmta sætið en Hondúras fer aftur á móti í umspilsleiki við Ástralíu um eitt laust sæti á HM næsta sumar.

Bandaríska liðið vann 4-0 sigur á Panama fyrir nokkrum dögum en sá sigur dugði skammt þegar riðillinn var gerður upp.

„Við höfðum þetta allt í hendi okkar. Við klúðruðum þessu og höfum engar afsakanir. Við áttum alltaf að ganga af þessum velli með að minnsta kosti eitt stig. Við eigum aldrei að missa af HM og ég tek fulla ábyrgð á þessu,“ sagði Bruce Arena, landsliðsþjálfari Bandaríkjamanna, eftir leikinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×