Fótbolti

Íslenska Rússlandsævintýrið hafið | Stjörnustelpur í miklu stuði og komust áfram

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjörnukonur fagna marki.
Stjörnukonur fagna marki. Vísir/Stefán
Stjarnan er komið áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir frábæran 4-0 sigur á rússneska liðnu Rossiyanka úti í Rússlandi í dag. Þetta var seinni leikur liðanna í 32 liða úrslitum keppninnar.

Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli í Garðabænum en Stjörnukonur eru farnir að þekkja vel til í Rússlandi og léku við hvern sinn fingur í seinni leiknum í dag.

Stjarnan vann 5-1 samanlagt og komst þar með loksins í gegnum rússneskt lið í Meistaradeildinni en Garðabæjarliðið hefur mætt liði frá Rússlandi í öll fjögur skiptin sem liðið hefur komist í 32 liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2008 sem íslensk kvennalið kemst í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar eða síðan að Valskonur komust í milliriðil keppninnar fyrir níu árum en þá byrjaði útsláttarkeppnin ekki fyrr en í átta liða úrslitum.  

Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði tvö mörk í dag, Kristrún Kristjánsdóttir var með mark og stoðsendingu beint úr horni og fjórða markið var sjálfsmark markvarðarins Anastasiyu Ananyeva. Agla María Albertsdóttir lagði upp tvö marka Stjörnuliðsins í dag.

Stjörnukonur hafa með þessu vonandi gefið rétta tóninn fyrir komandi sumar þar sem karlalandsliðið mun gekk á heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Þá má kannski segja að íslenska Rússlandsævintýrið sé hafið.

Katrín Ásbjörnsdóttir kom Íslandi í 1-0 á 41. mínútu eftir fyrirgjöf frá Öglu Maríu Albertsdóttur og þannig var staðan í hálfleik.

Kristrún Kristjánsdóttir kom Stjörnunni í 2-0 á 49. mínútu með marki beint úr hornspyrnu og fimm mínútum síðar endaði hornspyrna Kristrúnar á Katrínu sem kom Stjörnunni í 3-0.

Fjórða markið var sjálfsmark rússneska markvarðarins Anastasiyu Ananyeva sem sló fyrirgjöf Öglu Maríu Albertsdóttur í eigið mark.

Hér að neðan má sjá útsendingu frá leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×