Viðskipti innlent

Eignast meirihluta í Fiskeldi Austfjarða

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Fiskeldi Austfjarða er með eldi í Berufirði og Fáskrúðsfirði.
Fiskeldi Austfjarða er með eldi í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Vísir/GVA
Norska fiskeldisfyrirtækið NTS ASA hyggst festa kaup á 45,2 prósenta hlut í Fiskeldi Austfjarða, sem stundar fiskeldi í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Seljandi er annað norskt fyrirtæki, MNH Holding.

NTS á nú þegar 16,9 prósenta hlut í íslenska fiskeldisfyrirtækinu í gegnum dótturfélag sitt, Midt-Norsk Havbruk, og mun því eiga ráðandi 62,1 prósents hlut eftir að kaupin ganga í gegn síðar á árinu.

Kaupverðið mun ráðast af þeim leyfum sem Fiskeldi Austfjarða fær til laxaframleiðslu.

NTS greiðir að lágmarki 73,5 milljónir norskra króna, sem jafngildir um 965 milljónum íslenskra króna, fyrir hlutabréfin, en ef Fiskeldi Austfjarða fær leyfi til aukinnar framleiðslu á næstu tíu árum gæti kaupverðið hækkað í allt að 294 milljónir norskra króna eða sem nemur 3,9 milljörðum íslenskra króna.

Fisk­eldi Aust­fjarða hefur nú leyfi til þess að slátra 11 þúsund tonnum á ári í Berufirði og Fáskrúðsfirði, en fyrirtækið áætlar að auka árlega slátrun úr fiskeldinu í 21 þúsund tonn. Gera langtímaáætlanir fyrirtækisins ráð fyrir allt að 54 þúsund tonna framleiðslu.

Fram kom í skýrslu starfshóps um stefnumótun í fiskeldi, sem skilaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sjávarútvegsráðherra skýrslu í ágústmánuði, að nær öll erlend fjárfesting í íslensku laxeldi kæmi frá norskum fiskeldisfyrirtækjum.

Ljóst væri að erlendir fjárfestar hefðu fjármagnað uppbyggingu sjókvíaeldis þegar innlent fjármagn til slíkra fjárfestinga var ekki í boði.

„Jafnframt hafa erlendir fjárfestar miðlað af reynslu sinni og þekkingu og nýtt viðskiptasambönd sín í rekstri fiskeldis hér á landi. Engum vafa er undirorpið að uppbygging íslensks fiskeldis undanfarin ár byggist á þessari þátttöku erlendra fjárfesta. Þessi uppbygging fiskeldisins hefur ekki aðeins skilað beinum fjárfestingum til landsins heldur einnig leitt af sér óbein áhrif í formi afleiddra starfa sem tengjast fiskeldi,“ sagði í skýrslunni.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×