Innlent

Krafa um dreifingu ferðamanna vegna þátttöku Íslands á HM

Sveinn Arnarsson skrifar
Landkynning Íslands vegna afreka Gylfa Sigurðssonar og félaga mun fjölga ferðafólki á Íslandi.
Landkynning Íslands vegna afreka Gylfa Sigurðssonar og félaga mun fjölga ferðafólki á Íslandi. vísir/Ernir
Góður árangur íslensku landsliðanna í knattspyrnu mun hafa þau áhrif að ferðamönnum fjölgi áfram hér á landi þó hlutfallsleg fjölgun verði ekki sú sama og síðustu ár.

Mikilvægt er að tryggja innviði og samgöngur til að dreifa ferðamönnum sem víðast að mati Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF).

Umfjöllun um það afrek íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, að hafa tryggt sér keppnisrétt á lokakeppni HM í Rússlandi næsta sumar var að finna úti um allan heim. Þar fer jákvæð landkynning sem bætist við þá kynningu sem áfangastaðurinn Ísland hefur fengið síðustu misseri.

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF.vísir/ernir
Gistinóttum á Norður- og Austurlandi fækkaði í ágústmánuði saman­borið við ágústmánuð í fyrra og vísbendingar eru um að ferðamenn fari styttri ferðir út úr höfuðborginni en áður. Þannig nýtast illa þær fjárfestingar í ferðaþjónustu sem fjærst eru suðvesturhorni landsins.

„Eftir Evrópumótið í fyrra sáum við mikla aukningu í ferðaleitar­fyrirspurnum, sérstaklega frá markaðssvæðum í Evrópu. Núna eru strákarnir okkar á leið á HM þar sem sviðið er enn stærra sem þeir munu án efa nýta sér til fulls og við njóta góðs af,“ segir Helga.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra
Hún telur ferðaþjónustuna hafa fjárfest fyrir um 180 milljarða árin 2015 og 2016. „Því miður er ekki hægt að segja það sama um stjórnvöld,“ segir Helga. „Til að tryggja heilsársferðaþjónustu á Íslandi um allt land verður meðal annars að stórbæta samgöngur enda eru þær lífæð ferðaþjónustunnar og samfélagsins alls. Öruggar og tryggar samgöngur eru undirstaða hagsældar okkar allra.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, segir mikilvægt að dreifa ferðamönnum sem víðast svo allir landsmenn njóti góðs af ferðaþjónustu allt árið. „Við erum að vinna í því að auka millilandaflug um Akureyri og Egilsstaði en það verður að gerast á markaðslegum forsendum. Vinna er í fullum gangi við að dreifa ferðamönnum og fjölga seglum úti um allt land,“ segir Þórdís Kolbrún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×