Bílar

Leikmenn Bayern Munchen fengu að velja sér nýja Audi bíla

Finnur Thorlacius skrifar
Margir leikmenn Bayern Munchen völdu sér Audi RS6 Avant kraftaköggulinn.
Margir leikmenn Bayern Munchen völdu sér Audi RS6 Avant kraftaköggulinn.
Samstarf Audi og knattspyrnuliðs Bayern Munchen hefur staðið yfir síðan árið 2002, eða í 15 ár og á hverju ári fær hver og einn einasti leikmaður Bayern Munchen að velja sér sinn drauma Audi til að aka á næstu 12 mánuði. Líkt og í fyrra völdu flestir leikmenn Audi RS6 Avant kraftaköggulinn sem er ríflega 600 hestöfl. Þar á meðal voru leikmenn eins og Hummels, Jéróme Boateng, og Thiago Alcántara.

Næstvinsælasti bíllinn reyndist jeppinn Audi SQ7 og fengu til dæmis Frank Ribéry og Müller sér slíkan bíl. Nokkrir fengu sér Audi SQ5 jepplinginn öfluga og þar á meðal þjálfarinn Jupp Heynckes. Felix Götze var svo þeirra langhógværastur og ætlar að aka um á Audi A3 Sportsback næstu 12 mánuði.

Allir leikmenn og þjálfarar Bayern Munchen gerðu sér ferð til höfuðstöðva Audi í Ingolstadt og fengu þar afhenta bíla sína við mikla viðhöfn þar sem ekki hefur skort ljósmyndarana. Þar heimsóttu þeir aðalverksmiðju Audi sem er næststærsta bílaverksmiðja í Evrópu, á eftir verksmiðju Volkswagen í Wolfsburg. Í verksmiðjunni í Ingolstadt voru framleiddir 592.337 Audi A3, A4, A5 og Q2 bílar í fyrra. Slíkt magn bíla myndi duga til að metta íslenska bílamarkaðinn í um 30 ár.






×