Innlent

Eldur laus í Hótel Natura

Birgir Olgeirsson skrifar
Allar stöðvar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar á vettvang.
Allar stöðvar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar á vettvang. Atli Stefán
Eldur kom upp í þaki Hotel Natura, sem áður hét Hótel Loftleiðir, við Nauthólsveg í Reykjavík á þriðja tímanum í dag. Samkvæmt fréttamanni á staðnum hefur slökkviliðið náð tökum eldinum.

Var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað á vettvang og hótelið rýmt. Slökkviliðið er enn að störfum á vettvangi. 

Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar berast.

Mikill viðbúnaður var á vettvangi. Eftir því sem fréttastofa kemst næst varð engum meint en þeir sem þurftu að yfirgefa hótelið fengu aðhlynningu fyrir utan.

Fjöldi ferðamanna stendur fyrir utan hótelið að fylgjast með aðgerðum slökkviliðsins.Vísir/Helga
Slökkviliðið notaði kranabíl til að komast að eldinum.Vísir/Helga
Mynd tekin frá Háskólanum í Reykjavík.Vísir/Helga
Reykurinn sést langar leiðir.Atli Stefán
Hótelið var rýmt vegna eldsins. Eftir því sem fréttastofa kemst næst varð engum meint af en þeir sem þurftu að rýma hótelið fengu aðhlynningu fyrir utan.Vísir/Helga



Fleiri fréttir

Sjá meira


×