Íslenski boltinn

Jóhannes Karl þjálfar ÍA og Sigurður Jónsson verður aðstoðarþjálfari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhannes Karl Guðjónsson fær það verkefni að koma ÍA aftur upp í Pepsi-deildina.
Jóhannes Karl Guðjónsson fær það verkefni að koma ÍA aftur upp í Pepsi-deildina. Vísir/Anton
Skagamenn hafa ráðið sér nýjan þjálfara fyrir átökin í Inkasso deild karla í fótbolta en ÍA liðið féll úr Pepsi-deildinni á dögunum.

Á heimasíðu ÍA kemur fram að Jóhannes Karl Guðjónsson verður næsti þjálfara meistaraflokks karla og Sigurður Jónsson muni aðstoða hann.

Gunnlaugur Jónsson kláraði ekki tímabilið með Skagaliðið og aðstoðarmaður hans, Jón Þór Hauksson, tók við af honum á miðju tímabili. Skagamenn þakka Jóni Þór Haukssyni fyrir frábært og óeigingjarnt starf sem aðstoðarþjálfari í fjögur leiktímabil og sem aðalþjálfari meistaraflokks karla undanfarnar vikur.

Jóhannes Karl er uppalinn hjá ÍA og hefur mikla reynslu sem leikmaður hér á landi og sem atvinnumaður erlendis m.a. hjá Burnley í Englandi. Undanfarið hefur Jóhannes Karl þjálfað HK í Kópavogi með góðum árangri.

Sigurður Jónsson hefur jafnframt verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá ÍA. Sigurður hefur undanfarin ár verið þjálfari yngri flokka hjá ÍA og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla síðustu vikurnar en einnig hefur hann þjálfað knattspyrnufélagið Kára á Akranesi.

Sigurður er einn sigursælasti leikmaður Knattspyrnufélags ÍA og hefur víðtæka reynslu sem leikmaður og atvinnumaður erlendis m.a. hjá Arsenal í Englandi. Sigurður hefur einnig mikla reynslu sem þjálfari hér á landi og í Svíþjóð þar sem hann þjálfaði m.a. úrvalsdeildarfélagið Djurgården um tveggja ára skeið.

„Það er mikill heiður og stór áskorun fyrir mig að takast á við að þjálfa ÍA, félagið sem ég er alinn upp í og félagið sem ég hef alltaf litið á sem mitt félag. Í raun er draumur minn að rætast með þessari ráðningu og það er sérstaklega skemmtilegt að fá tækifæri til að vinna með reynsluboltanum Sigurði Jónssyni sem ég horfði á með lotningu á fótboltavellinum þegar ég var lítill strákur. Framtíðin er björt í fótboltanum á Akranesi og það er mjög spennandi að fá að taka þátt í því metnaðarfulla uppbyggingarstarfi sem unnið er á því sviði í bænum mínum“ sagði Jóhannes Karl í viðtali á heimasíðu ÍA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×