Innlent

Flokkarnir flestir á elleftu stundu með framboðslista sína

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Flokkarnir hafa til hádegis í dag til að skila framboðum.
Flokkarnir hafa til hádegis í dag til að skila framboðum. Vísir/Ernir
Ljóst er að meirihluti flokkanna sem ætla að bjóða fram í alþingiskosningunum 28. október næstkomandi verður á síðustu stundu með að skila inn formlegum framboðslistum sínum til yfirkjörstjórna kjördæmanna. Framboðsfrestur rennur út á hádegi í dag.

Á framboðslista skulu vera tvöfalt fleiri frambjóðendur en nemur þingsætum í kjördæminu. Listanum þarf að fylgja skrifleg yfirlýsing þeirra sem á honum eru um að þeir veiti leyfi fyrir því að nöfn þeirra séu þar. Þá þarf að skila inn meðmælum, skriflegri yfirlýsingu um stuðning við listann frá kjósendum í viðkomandi kjördæmi.

Fjöldi meðmælenda skal vera margfeldi af þingsætatölu kjördæmisins og talnanna 30 að lágmarki og 40 að hámarki. Kjörstjórnir fara síðan yfir hvort framboð séu gild og veita flokkum skamman frest, ef þörf er á, til að bæta úr.

Staðan á framlagningu framboðslista er mismunandi milli kjördæma. Í Suðvesturkjördæmi hafði til að mynda enginn flokkur skilað inn formlegum framboðslista þegar Fréttablaðið athugaði málið hjá yfirkjörstjórn þar. Tekið verður á móti framboðum í Kaplakrika kl. 10-12 í dag og stefnir því í að það verði traff­ík í Krikanum fram að hádegi.

Í Norðvesturkjördæmi höfðu þrír flokkar skilað inn listum í gær, Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin og Vinstri græn. Þar fengust þær upplýsingar að von væri á fleiri framboðum, eins og gefur að skilja.

Staðan er best í Norðausturkjördæmi þar sem 10 flokkar hafa skilað framboðslistum og bjóst oddviti yfirkjörstjórnar ekki við fleiri listum.

Sjö framboðslistar höfðu borist í Suðurkjördæmi og höfðu þeir komið á þriðjudag. Í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur, suður og norður, höfðu aðeins Vinstri græn og Píratar skilað inn framboðslistum sínum á þriðjudag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×