Viðskipti innlent

Húsvíkingar sjá fleiri not fyrir nýju höfnina

Kristján Már Unnarsson skrifar
Snæbjörn Sigurðarson, verkefnastjóri hjá Norðurþingi.
Snæbjörn Sigurðarson, verkefnastjóri hjá Norðurþingi. Stöð 2/Arnar Halldórsson.
Húsvíkingar hugsa sér gott til glóðarinnar vegna nýrrar iðnaðarhafnar, sem nú er að verða tilbúin. Höfnin mun einnig nýtast stórum skemmtiferðaskipum og annarri starfsemi og veita hvalaskoðunarbátum meira rými. Í fréttum Stöðvar 2 var rætt við Snæbjörn Sigurðarson, verkefnastjóra hjá Norðurþingi. 

Í frétt Stöðvar 2 mátti sjá starfsmenn frá Trésmiðjunni Rein á Húsavík steypa þekjuna á nýrri bryggju en steypan kemur frá steypustöðinni Steinsteypi á Húsavík. Hér munu leggja að flutningaskipin sem koma til með að þjóna iðnaðarsvæðinu á Bakka en hafnargerðin er á lokametrunum, rétt eins og aðrir þættir sem snúa að uppbyggingunni.

Þekjan steypt á nýju bryggjunni.Stöð 2/Arnar Halldórsson.
Áætlað er að hafnargerðin kosti um einn milljarð króna en stærsta hlutann vann LNS Saga sem nú heitir Munck, Íslandi. Svokallaður Bökugarður var lengdur um eitthundrað metra og gert nýtt gáma- og geymslusvæði. Nýju mannvirkin nýtast þó fleirum en bara kísilveri PCC. 

„Já, við sjáum þegar töluverðan mun á því. Hingað eru að koma skip, sem voru ekki áður, bæði regluleg umferð hérna hjá skipafélögunum og líka tilfallandi skipakomur. Menn hafa náð að nýta þessar ferðir töluvert, bæði til þess að fá varning hér inn og til þess að senda hann út. Þannig að þetta hefur haft mjög jákvæð áhrif á aðra starfsemi hér á svæðinu,” segir Snæbjörn.

Séð yfir Húsavík og höfnina. Bökubakki er lengst til hægri,Stöð 2/Arnar Halldórsson.
Og Húsvíkingar sjá fram á að ferðaþjónustan njóti góðs af stærri höfn. 

„Skemmtiferðaskip að auki hafa getað lagt að Bökubakkanum. Það býður upp á ýmsa möguleika til framtíðar að taka á móti mjög stórum skemmtiferðaskipum hérna þegar fram líða stundir.” 

Hvalaskoðunarbátar Húsvíkinga hafa svæðið innst í gömlu höfninni en nýja höfnin léttir á henni og veitir þannig hvalaskoðunarfyrirtækjunum meira svigrúm.

Hvalaskoðunarbátarnir verða áfram innst í gömlu höfninni.
„Það er bara frábært að hafa þessa fjölbreytni í kringum höfnina hérna; að hafa iðnaðarstarfsemina, að hafa ferðaþjónustuna, að hafa fiskinn. Þannig að þegar þetta kemur allt saman á svona á einu svæði, eins og höfnin er, þá er það bara frábært fyrir samfélög eins og hér,” segir verkefnastjóri Norðurþings. 

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Kísilverið á Bakka fær raforku á réttum tíma

Einstök heppni með veður á norðlenskum heiðum á stóran þátt í því að kísilverið á Bakka fær rafmagn frá Þeistareykjum á réttum tíma en lengi var tvísýnt um háspennulínur vegna kærumála.

Nýtt íbúðahverfi í smíðum á Húsavík

Fasteignaverð hefur hækkað um fjörutíu prósent á Húsavík. Nýtt íbúðahverfi sprettur upp og er byggingartími einstakra húsa aðeins um fjórir mánuðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×