Pellegrino náði í jafntefli gegn gamla læriföður sínum | Sjáðu mörkin

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Southampton og Newcastle skildu jöfn í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Mauricio Pellegrino er stjóri Southampton, en hann spilaði undir handleiðslu Rafael Benitez hjá Liverpool.

Isaac Hayden kom Newcastle yfir með glæsilegu marki á 20. mínútu þegar hann skaut boltanum viðstöðulaust af markteigslínunni og í vinstra markhornið.



Manolo Gabbiadini jafnaði snemma í seinni hálfleik en Ayoze Perez kom Newcastle aftur yfir aðeins tveimur mínútum seinna.

Gabbiadini jafnaði svo aftur fyrir heimamenn með sínu öðru marki þegar hann skoraði af öryggi úr vítaspyrnu.

Newcastle er í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 11 stig eftir leikinn, en Southampton fer upp í það tíunda með 9 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira