Börsungar björguðu stigi gegn Atletico

Messi reynir að sleppa úr gæslu Atletico-manna í kvöl
Messi reynir að sleppa úr gæslu Atletico-manna í kvöl Vísir/Getty
Luis Suárez bjargaði stigi fyrir Barcelona í 1-1 jafntefli gegn Atletico Madrid með skalla þegar stutt var til leiksloka í lokaleik dagsins í spænska boltanum.

Eftir sigur Real Madrid gegn Getafe í dag gátu Börsungar náð sjö stiga forskoti á ný á toppi deildarinnar er þeir mættu á Wanda Metropolitano, heimavöll Atletico sem sat í þriðja sæti fyrir leikinn.

Saul Niguez kom heimamönnum yfir með snyrtilegu skoti á 21. mínútu er hann lagði boltann í fjærhornið og leiddu heimamenn í hálfleik.

Tíu mínútum fyrir leikslok tókst Suárez að jafna fyrir gestina, fékk hann góða sendingu á fjærstöng frá Sergi Roberto og skallaði í netið af stuttu færi.

Reyndist það vera síðasta mark leiksins og skyldu þau því jöfn en eftir leik eru Börsungar með fimm stiga forskot á erkifjenduna í Real Madrid en Valencia getur náð öðru sætinu með sigri á Betis.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira