Lífið

Corden, Usher og Evans kepptu í því að vera „sexy“

Samúel Karl Ólason skrifar
Usher, Luke Evans og James Corden. Á bakvið þá eru meðlimir Filharmonics.
Usher, Luke Evans og James Corden. Á bakvið þá eru meðlimir Filharmonics.
James Corden bauð þeim Usher og Luke Evans í heimsókn í þátt sinn The Late Late Show í gær og keppti við þá í kynþokka. Þeim til stuðnings voru söngvararnir Filharmonics. Áður en Usher átti að stíga á svið heyrði hann James Corden stæra sig af því að vera kynnþokkafyllsti söngvarinn á lífi.

Hann gat ekki sætt sig við það.

Eftir hatrama baráttu Corden og Usher hljóp Evans þó fram og sýndi hvað hann getur gert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×