Menning

Frá bjórkvöldum yfir í elegans óperunnar

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Söngvari, rappari, leikari og nú óperusöngvari (eða smaladrengur).
Söngvari, rappari, leikari og nú óperusöngvari (eða smaladrengur). Vísir/Eyþór
Leikarinn, söngvarinn og rapparinn Sigurbjartur Sturla Atlason syngur hlutverk smala í uppfærslu Íslensku óperunnar á Toscu – réttara sagt syngur hann aríuna Io de sospiri te ne rimanno tanti. Líklega ekki oft sem íslenskur poppari stígur á svið með Íslensku óperunni og hefur upp raust sína. Reyndar er þetta í annað sinn sem Sigurbjartur kemur fram hjá óperunni en hann lék þögult hlutverk í Évgení Onegin eftir Tsjajkovskí í fyrra.

Eins og flestir ættu að vita kemur Sigurbjartur fram undir nafninu Sturla Atlas þar sem hann syngur og rappar um ástir og örlög ungs fólks í dag við miklar vinsældir.

Hefurðu verið að æfa þig í að syngja einhverjar aríur fyrir framan spegilinn svona baksviðs áður en þú ferð á svið sem Sturla Atlas?

„Nei, ég get ekki sagt það. Ég var upphaflega ráðinn til að leika í sýningunni – síðan er þarna hlutverk sem er skrifað fyrir ungan dreng og þeim fannst það að láta mig syngja það vera farsælasta lausnin. Ég er að syngja þarna í falsettu allan tímann, það er dálítið skemmtilegt.“

Er það ekkert erfitt?

„Mér finnst þetta ekkert vera neitt ÞAÐ erfitt – mér fannst þetta svolítið steikt og fyndið fyrst þegar ég heyrði þetta af því að ég var ekkert að búast við að þetta væri eitthvað fyrir mig eða eitthvað sem myndi koma vel út, ég leyfði mér að efast um það. Núna finnst mér þetta mjög flott, eiginlega alveg geðveikt og ég er mjög spenntur að gera þetta.“

Þannig að þú ert bara kominn í hámenninguna núna?

„Þetta er mjög „classy“. Maður hefur auðvitað upplifað sitthvað, að spila á ýmsum svona lágmenningargiggum síðustu tvö ár – kannski mikið af bjórkvöldum á Spot í Kópavogi en núna fær maður elegansinn og hámenninguna.“

Má búast við óperusöng í næsta viðlagi hjá Sturlu Atlas?

„Ég held að ég myndi ekki komast upp með það?… en ég veit það ekki, kannski.“

Verkið verður frumsýnt 21. október og fyrir alla æsta aðdáendur Sturlu Atlas þá stígur smaladrengurinn á sviðið í upphafi 3. þáttar. Hér fyrir neðan má hlýða á söngkonuna Katiu Velletaz syngja aríuna.


Tengdar fréttir

Ballerína í búningahönnun

Natalía Stewart er rússnesk ballerína sem sneri sér að búningahönnun. Hún hannar búninga fyrir uppfærslu Íslensku óperunnar á ítölsku óperunni Tosca sem verður frumsýnd 21. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×