Fótbolti

Kannski ekki bara Messi að þakka að Argentínumenn komust inn á HM | Fimm Ekvadorar í bann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi í miðjum fagnaðarlátunum eftir að HM sætið var tryggt.
Lionel Messi í miðjum fagnaðarlátunum eftir að HM sætið var tryggt. Vísir/Getty
Lionel Messi sá til þess að Argentína verður með okkur Íslendingum á HM í fótbolta í Rússlandi næsta sumar en hann skoraði þrennu í lokaleik liðsins á móti Ekvador sem var hreinlega upp á líf og dauða fyrir HM-draum argentínska landsliðsins. Nú hafa fimm leikmenn landsliðs Ekvador hinsvegar verið settir í bann.

Leikmennirnir fimm hafa verið settir í bann af Knattspyrnusambandi Ekvador fyrir að brjóta agareglur liðsins í aðdraganda leiksins á móti Argentínu. Leikmennirnir fóru út á lífið og duttu í það á milli leikja en landslið Ekvador átti ekki lengur möguleika á því að komast á HM eftir tap í fyrri leiknum.

Leikmennirnir yfirgáfu liðshótelið á föstudagskvöldinu og fór út í úthverfi höfuðborgarinnar Quito og nutu lífsins. Yfirboðarar þeirra hjá landsliðinu voru allt annað en sáttir við þetta ekki síst eftir að liðið tapaði síðan leiknum þrátt fyrir sannkallaða draumabyrjun.

Leikurinn byrjaði vel fyrir Ekvador sem komst í 1-0 á fyrstu mínútu en Lionel Messi var búinn að koma Argentínu yfir innan átján mínútna og kláraði síðan þrennuna og leikinn í seinni hálfleik.

Knattspyrnusamband Ekvador var ekki búið að gefa upp hvaða fimm leikmenn þetta voru en fjölmiðlar þar í landi segja þetta hafa verið þeir Robert Arboleda, Jefferson Orejuela, Gabriel Cortez, Enner Valencia og Joao Plata.

Enner Valencia lék áður með West Ham og Everton í ensku úrvalsdeildinni en er nú leikmaður Tigres UANL í Mexíkó.  Jefferson Orejuela og Robert Arboleda spila báðir í Brasilíu, og Joao Plata er leikmaður Real Salt Lake í Bandaríkjunum.  Gabriel Cortez er sá eini sem spilar í heimalandinu.

„Með því að stíga þetta skref þá sendum við skýr skilaboð til framtíðarleikmanna liðsins,“ sagði í fréttatilkynningu Knattspyrnusambandsins.

Arboleda, Orejuela og Valencia spiluðu allir á móti Argentínu. Orejuela hefur tjáð sig við blaðið El Telégrafo og segir þar að þetta sé lygi.

Lionel Messi skorar eitt þriggja marka sinn án þess að leikmenn Ekvador komi vörnum við.Vísir/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×