Golf

Ólafía áfram á botninum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir situr enn á botninum á Keb Hana mótinu í golfi sem fram fer í Suður Kóreu þegar keppni á þrem af fjórum hringjum er lokið.

Ólafía spilaði betur en í gær, en hún lék hringinn á 75 höggum, eða þremur höggum yfir pari. Hún er því samtals á 12 höggum yfir pari á mótinu.

Hringurinn var sveiflukenndur hjá Ólafíu, en hún fékk fimm fugla, fjóra skolla og tvo skramba.

Efst fyrir lokahringinn er heimakonan Jin Young Ko en hún er samtals á 15 höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×