Körfubolti

Domino's Körfuboltakvöld: Nýja skrefareglan útskýrð

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Í stórleik Stjörnunnar og KR í Domino's deild karla á föstudagskvöldið var umtalaður skrefadómur. Sérfræðingarnir í Domino's Körfuboltakvöldi skoðuðu hann að sjálfsögðu vel í uppgjöri sínu á leiknum.

Nýlega var samþykkt ný regla varðandi fjölda skrefa sem leikmaður má taka.

„Reglan er semsagt þannig, að eftir að hann er búinn að grípa hann þá á hann eitt skref, og svo tvö eftir það,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, þáttastjórnandi.

Samkvæmt þessri nýju reglu þá átti ekki að vera dæmd skref á Kristófer Acox í leiknum.

Kjartan Atli stóð á fætur og gekk með áhorfendum, og spekingum sínum, í gegnum hvernig nýja reglan virkar.

„Ég gríp hann í loftinu, þegar þessi [fótur] er kominn niður, hérna byrja skrefin að telja. Fyrsta löppin sem kemur niður eftir að hann er búinn að grípa, það telur ekki sem skref.“

Frábæra útskýringu Kjartans Atla má sjá í spilaranum hér að ofan.

 


Tengdar fréttir

Domino's Körfuboltakvöld: Lið og leikmenn umferðarinnar

Sérfræðingarnir í Domino's Körfuboltakvöldi völdu lið og leikmann 2. umferðar Domino's deildar karla í uppgjörsþættinum í gærkvöldi, jafnframt því að gera upp þriðju umferð í Domino's deild kvenna.

Domino's Körfuboltakvöld: Matareitrun, já ertu ekki orðinn fínn bara?

Leikmenn Þórs frá Þorlákshöfn hafa ekki byrjað tímabilið í Domino's deild karla eins og þeir hefðu óskað, en margir leikmanna liðsins þjáðust af matareitrun í upphafi móts. Sérfræðingarnir í Domino's Körfuboltakvöldi ræddu frestunina í gær og hnakkrifust um hana eins og þeim einum er lagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×