Enski boltinn

Sjáðu markaveislu City og öll mörk gærdagsins │ Myndband

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sjö leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar áttunda umferðin hófst.

Topplið Manchester City rúllaði yfir Stoke 7-2, Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp jöfnunarmark Burnley í 1-1 jafntefli við West Ham og Arsenal lá 2-1 fyrir Watford.

Crystal Palace náði loks að skora mark í deildinni og lögðu í leiðinni Englandsmeistara Chelsea 2-1. Stórleikur umferðarinnar, leikur Liverpool og Manchester United á Anfield, endaði með markalausu 0-0 jafntefli.

Öll mörk gærdagsins og helstu atvik má sjá í spilurunum hér að neðan og heildaruppgjör dagsins í spilaranum fyrir ofan.

Manchester City - Stoke 7-2
Liverpool - Manchester United 0-0
Burnley - West Ham 1-1
Crystal Palace - Chelsea 2-1
Watford - Arsenal 2-1
Tottenham - Bournemouth 1-0
Swansea - Huddersfield 2-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×