Fótbolti

Stórsigur Hjartar og félaga

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hjörtur í leik með Bröndby
Hjörtur í leik með Bröndby vísir/getty
Hjörtur Hermannsson spilaði allan leikinn í stórsigri Bröndby á Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Gustaf Nilsson kom gestunum yfir á 8. mínútu en Sammy Skytte fékk að líta tvö gul spjöld í fyrri hálfleik og þurfti Silkeborg því að spila manni færri í seinni hálfleiknum.

Þá tóku heimamenn við sér og skoruðu fjögur mörk á þrettán mínútna kafla.

Bröndby er í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Nordsjælland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×