Fótbolti

Sigur hjá Guðlaugi Victori og félögum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðlaugur Victor í vináttulandsleik með íslenska landsliðinu
Guðlaugur Victor í vináttulandsleik með íslenska landsliðinu vísir/getty
Rúnar Már Sigurjónsson var á sínum stað í byrjunarliði Grasshoppers þegar liðið fékk Luzern í heimsókn í svissnesku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Honum var hins vegar skipt út af á 58. mínútu leiksins fyrir Michal Fasko.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Guðlaugur Victor Pálsson spilaði allan leikinn fyrir Zurich sem gerði sér góða ferð til Thun og vann 1-3.

Michael Frey og Raphael Dwamena komu Zurich yfir í fyrri hálfleik, en Simone Rapp klóraði í bakkan fyrir Thun. Frey bætti svo við sínu öðru marki og innsiglaði sigurinn á 61. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×