Fótbolti

Lést eftir samstuð við liðsfélaga

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Choirul Huda spilaði allan feril sinn fyrir Persela
Choirul Huda spilaði allan feril sinn fyrir Persela mynd/Persela
Markmaðurinn Choirul Huda lést eftir samstuð við liðsfélaga sinn í fótboltaleik á Indónesíu.

Huda lék með liðinu Persela sem átti leik gegn Semen Padang í efstu deild Indónesíu í gær.

Hann lenti í samstuði við liðsfélaga sinn undir lok fyrri hálfleiks og var strax fluttur á sjúkrahús, en lést skömmu síðar.

Samstuðið olli hjartaáfalli sem og áverkum á hálsi og öndunartruflunum.

Huda átti að baki yfir 500 leiki fyrir Persela og lék hann allan feril sinn með félaginu.

Félagið tileinkaði Huda færslu á Instagram síðu sinni þar sem þeir þökkuðu honum fyrir ástríðu og heilhug sýndan félaginu og kölluðu hann hina sönnu goðsögn Persela.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×