Sjö milljónir farþega farið um Keflavíkurflugvöll í ár Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. október 2017 10:43 Hjónin voru leyst út með gjöfum við komuna til Íslands. isavia
Sjö milljónasti farþegi ársins fór á dögunum um Keflavíkurflugvöll en hann kom til landsins frá Belfast með EasyJet. Starfsfólk Isavia fagnaði þeim Chris og Joanne Bradley og voru þau leyst út með gjöfum á Keflavíkurflugvelli. Í tilkynningu frá Isavia segir að hjónin hafi verið afar ánægð með móttökurnar og kváðust spennt að upplifa öðruvísi frí en að liggja á sólbekk við sundlaug. „Þau eru á leið í ferðalag um Ísland í fjóra daga og ætla sér að fara Gullna hringinn og í Bláa Lónið auk þess sem þau vonast til þess að sjá norðurljósin. Talning farþega um Keflavikurflugvöll skiptist í komufarþega, brottfararfarþega og skiptifarþega og skiptist fjöldinn um það bil jafnt í þrennt. Þegar sjömilljónasti farþeginn fór um völlinn skiptist farþegafjöldinn svona: 2.253.992 brottfararfarþegar, 2.319.489 komufarþegar og 2.426.519 skiptifarþegar. Á síðasta ári náði farþegafjöldinn 6,8 milljónum en í ár er búist við að fjöldinn verði um 8,7 milljónir og því verður bæði fagnað núna þegar sjö milljóna múrnum er náð og einnig þegar fjöldinn fer yfir átta milljónir í desember næstkomandi. Fjölgun farþega hefur verið mjög hröð um Keflavíkurflugvöll síðastliðin ár og samkvæmt farþegaspá Isavia verður fjöldinn í ár 28% meiri en árið 2016. Þá munu ríflega fjórfalt fleiri ferðast um flugvöllinn í ár en árið 2010,“ segir í tilkynningu Isavia.
Mest lesið Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Viðskipti innlent Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Viðskipti innlent Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Viðskipti innlent Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Viðskipti erlent „Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“ Atvinnulíf Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkanir Neytendur Stöð 2+ lækkar verð Neytendur Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu Atvinnulíf Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Sjá meira