Formúla 1

Button: Hamilton er að njóta lukkunnar sem skorti í fyrra

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Jenson Button og Lewis Hamilton eru miklir mátar.
Jenson Button og Lewis Hamilton eru miklir mátar. Vísir/Getty
Jenson Button telur að Lewis Hamilto sé að njóta góðs í ár af þeirri óheppni sem hann þurfti að þola í fyrra.

Hamilton átti við mikil áreiðanleikavandamál á síðasta tímabili. Vélin gaf sig í Malasíu og hann tapaði að endingu titlinum til Nico Rosberg, liðsfélaga síns með fimm stiga mun.

Hamilton hefur unnið átta keppnir í ár og lokið öllum 16 keppnum tímabilsins hingað til. Á meðan hefur Sebastian Vettel, helsti keppinautur Hamilton fallið úr leik í tveimur af síðustu þremur keppnum og ræsti aftastur í þeirri þriðju.

Hamilton leiðir nú heimsmeistarakeppni ökumanna með 59 stigum og með fjórar keppnir eftir eru 100 stig það mesta sem ökumaður getur sótt það sem eftir er af tímabilinu.

Aðspurður um hvern hann taldi líklegan til að verða heimsmeistari í lok árs svaraði Button: „Maður verður að segja að Lewis sé líklegastur enda með mikið forskot.“

„Það er hægt að segja að Lewis sé að njóta lukku núna sem hann fékk ekki neitt af á síðasta ári, svo þetta jafnast út,“ bætti Button við.


Tengdar fréttir

Brendon Hartley mun fylla autt sæti hjá Toro Rosso

Brendon Hartley, fyrrum ökumaður í uppeldisakademíu Red Bull liðsins mun taka sæti Carlos Sainz í bandaríska kappakstrinum. Hann mun aka við hlið Daniil Kvyat sem snýr aftur í fjarveru Pierre Gasly.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×