Íslenski boltinn

Ólafur Karl orðinn Valsari

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafur Karl verður hjá Val til 2020
Ólafur Karl verður hjá Val til 2020 vísir/anton brink
Ólafur Karl Finsen hefur gengið til liðs við Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu.

Hann var tilkynntur sem nýr leikmaður félagsins á blaðamannafundi á Hlíðarenda nú rétt í þessu. Samningur Ólafs er til þriggja ára.

Ólafur Karl kemur frá Stjörnunni, en hann hefur leikið með Garðbæingum frá því árið 2010. Valur reyndi að fá hann til liðs við sig í sumarglugganum, en án árangurs.

Ólafur sleit krossband í byrjun tímabilsins 2016, en spilaði í 12 leikjum Stjörnunnar í sumar og skoraði eitt mark.

Valsmenn tilkynntu einnig að von er á fleiri fréttum af leikmannamálum á næstu dögum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×