Innlent

Fréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Um fjögur þúsund manns fylgdust með fæðingu barns sem kom í heiminn í Keflavík á föstudaginn, þar sem móðirin var með beina útsendingu frá fæðingunni á Snapchat. Við ræðum við móðurina um þetta óvenjulega uppátæki í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

Þar fjöllum við líka um sannkallaða sprengingu sem orðið hefur á samfélagsmiðlum í dag undir myllumerkinu Me too, eða Ég líka en fjölmargir hafa stigið fram og greint frá reynslu sinni af kynferðislegri áreitni og kynferðisofbeldi.

Þetta og margt fleira í fréttum Stöðvar tvö, í opinni dagskrá, klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×