Menning

Því er nú allt að leysast upp í abstrakt

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Guðmundur segir sýningargesti jafnan fara brosandi út. "Þeim finnst titillinn nokkuð sniðugur og ýmislegt sem fyrir augun ber.“
Guðmundur segir sýningargesti jafnan fara brosandi út. "Þeim finnst titillinn nokkuð sniðugur og ýmislegt sem fyrir augun ber.“ Vísir/Stefán
Skrítnir karlmenn sem ráfa um í einhvers konar tómi birtast í klippimyndum Guðmundar Thoroddsen á sýningunni Tittlingaskítur í Hverfis­galleríi á Hverfisgötu 4 í Reykjavík.

Þetta er hans fyrsta einkasýning og þar er hann líka með málverk og leirskúlptúra. Inntur eftir hvað fyrir honum vaki svarar hann: 

 „Ja, síðustu ár hef ég unnið mikið með karla og feðraveldið í minni list, en á húmorískan hátt. Mín afstaða er svolítið ráðvillt í þeirra garð, því ég er að hæðast að þeim. Líka svolítið að gagnrýna kerfið en um leið að upphefja það með því að fjalla um það.“

Guðmundur viðurkennir að afstaða hans sé svolítið tvíbent. „Nú er ég karl sjálfur, á miðjum aldri og get ekkert að því gert. Mér finnst karlar dálítið frekir og leiðinlegir en samt eru ýmis mikilmennin sem maður heldur upp á. Því er nú allt að leysast upp í abstrakt, þó að formin ýi að einhverju sem lesa má út úr þeim sem gagnrýni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×