Tottenham sótti sterkt stig til Madridar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo sækir að marki Spurs í kvöld.
Ronaldo sækir að marki Spurs í kvöld. vísir/getty
Tottenham lét Real Madrid hafa fyrir hlutunum á Santiago Bernabeau í kvöld. Liðið skiptu með sér stigunum í leik sem endaði 1-1.

Raphael Varane skoraði sjálfsmark sem kom Tottenham yfir í leiknum en Cristiano Ronaldo jafnaði með marki úr vítaspyrnu.

Tottenham fékk tækifæri til þess vinna leikinn í síðari hálfleik en nýtti ekki færin sin.

Real og Tottenham eru jöfn í efstu sætum riðilsins með sjö stig. APOEL og Dortmund eru aðeins með eitt.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira