Ferðast fram hjá huganum Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 17. október 2017 13:15 Lea Karitas Gressier ætlar í tónferðalag annað kvöld með kristalsskál, trommu og tónkvísl sem hafa slakandi áhrif á líkama og sál. MYND/STEFÁN
Lea Karitas Gressier er jógakennari og tónheilari sem ástundar hugleiðslu með kakóbaunir frá Gvatemala innan handar. Hún hefur sterka köllun til að opna hjarta sitt og visku fyrir öðrum. „Ég hef alltaf verið forvitin um hvað býr innra og dýpra með okkur og þyrst í að vita til hvers við erum hér,“ segir Lea Karitas Gressier sem kennir Kundalini-jóga en er einnig tónheilari og andlegur leiðbeinandi. Lea býður líkama og sál í slakandi og endurnærandi tónferðalag annað kvöld. „Við lifum í samfélagi sem er á billjón. Æ fleiri þjást af streitu, kvíða og þunglyndi, og þurfa rými til að staldra við, anda og finna hvað er í gangi. Með tónheilun, eða hugleiðslu í tónferðalagi, nær fólk sterkri tengingu við hjartað og sjálft sig og við það nær líkami og sál betra jafnvægi,“ útskýrir Lea Karitas sem hefur um árabil ástundað djúpa hugleiðslu og tengingu við sitt innra sjálf. Á tónferðalaginu leggjast ferðalangarnir á teppi þar sem þeir líða áfram undir tónum sem valda algjörri slökun og koma þeim í samband við undirmeðvitundina. „Ég nota kristalsskál, tónkvísl og shamaníska trommu, sem allt eru hljóðfæri sem halda utan um ákveðnar tíðnir. Þegar leikið er á hljóðfærin fer líkaminn ósjálfrátt að víbra á sömu tíðni og við það slaknar á honum, losnar um streitu og jafnvægi fæst, ásamt vellíðan og ró.“Lea Karitas lærði Kundalini-jóga hjá Auði Bjarnadóttur og tónheilun í Gvatemale, þar sem hún kynntist einnig kakóbaunum innfæddra, sem hún segir hafa opnað hjarta sitt.MYND/STEFÁNLea Karitas lofar umbreytandi tónferðalagi. „Tilgangur kvöldsins er að ferðast fram hjá huganum og inn í óendanlega rýmið; ímyndunaraflið. Það er sá staður innra með okkur þar sem kyrrðin liggur og rými opnast fyrir endalausa möguleika; hreina tengingu við sköpunina og allt sem er.“ Hún segir tónlist og hljóðfæri hafa mikil áhrif á heilsufar. „Þannig hefur kristalsskálin önnur áhrif en tromman sem gefur okkur jarðtengingu og hjálpar okkur að ná rótarorku á meðan kristallinn nærir hausinn og hjartað,“ útskýrir Lea Karitas sem er útlærð í því að halda utan um rými tónferðalags fyrir hóp fólks. „Sjálf spái ég því að tónlistar- og tíðnimeðferð verði ein markverðasta þróun læknavísindanna. Nú þegar er vísindalega sannað að tónlist hefur stórbætandi áhrif á heilsu fólks og unnið er að grunnrannsóknum sem beita ákveðinni tíðni á krabbameinsfrumur sem veldur því að frumurnar hætta að vera illkynja. Mannveran er full af tíðni og orku, sem og allt í umhverfi hennar, og hægt er að hafa áhrif á orkuna með tónum og tíðni sem eiga samhljóm með orku mannsins og hafa bein áhrif á andlegt og líkamlegt heilsufar hans.“ Lea Karitas er líka kakóleiðbeinandi og notar kakóbaunir frá Gvatemala til tengingar við sitt innra sjálf. „Ég lærði Kundalini-jóga hjá Auði Bjarnadóttur en tónheilun í Gvatemala, þar sem ég kynntist líka kakóbaunum úr regnskógum Gvatemala hjá innfæddum kakóbændum sem hafa tínt þær í þúsundir ára. Kakóbaunirnar eru hrein náttúruafurð, hvorki blandaðar né erfðabreyttar, og hafa gert ótrúlega hluti í mínu lífi; hjálpað mér að ná innri sátt og opna hjartað gagnvart sjálfri mér og lífinu. Ég kaupi þær af kennaranum mínum, laga úr þeim kakóbolla og fer með því í djúpa hugleiðslu.“Tónferðalag Leu Karitasar fer fram í Lundi 92 í Kópavogi, klukkan 20 á morgun, miðvikudaginn 18. október. Aðgangseyrir 1.500 kr.
Mest lesið Nýtt myndband af Katrínu vekur athygli Lífið Byggja draumavillu með sundlaug sem kostar sextán milljónir Lífið Pizza King til sölu á þrettán milljónir Lífið Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni Lífið Ingó veðurguð og Alexandra eiga von á stelpu Lífið Óvenjulegur lífsstíll íslenskrar fjölskyldu vekur athygli Lífið Heiðdís Rós vill komast á Forbes listann Makamál Sturla Atlas og Kolfinna slá sér upp Lífið „Ég kynntist ástinni í lífi mínu þarna“ Lífið Hamingjusöm og þakklát Katrín Tanja á splunkunýjum jeppa Lífið Fleiri fréttir Nýtt myndband af Katrínu vekur athygli Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni Pizza King til sölu á þrettán milljónir Byggja draumavillu með sundlaug sem kostar sextán milljónir Kveðja eftir 117 ára góðgerðarstarf Hamingjusöm og þakklát Katrín Tanja á splunkunýjum jeppa Sturla Atlas og Kolfinna slá sér upp Magni gerði allt vitlaust þegar hann tók Dolphin's Cry Katrín sögð hafa sést úti meðal almennings Grímur leitar að bræðrum sínum Stjörnulífið: Eyddi kvöldinu með Paris Hilton í LA Zara tók sjálfur með gosinu Ingó veðurguð og Alexandra eiga von á stelpu Kann ekki að gefast upp Geggjuð í karókí og býr yfir miklum sannfæringarkrafti Fagnaðarfundir í 80 ára afmæli Loftleiða Salvador á Djúpavogi reyndist heita Buszek og búa í Sandgerði Dó næstum því við tökur á Íslandi Óvenjulegur lífsstíll íslenskrar fjölskyldu vekur athygli Krakkatían: Eurovision, rapparar og fótboltamenn „Ég kynntist ástinni í lífi mínu þarna“ Ætlar aldrei að gefast upp Fréttatía vikunnar: Húsbruni, skiltastærð og félagaskipti Ábendingum um aðstoð fyrir Blæsa rigndi yfir fjölskylduna Bíða eftir tölvupósti frá Heimsmetabók Guinness Myndaveisla: Spessi frumsýndi Afsakið meðanað égæli Bríet umkringd stórstjörnum í Japan Rétta úr kynjahlutfallinu á Álftanesi Binni Glee trúir ekki á risaeðlur Tignarleg arkitektaíbúð með vínherbergi í kjallara Sjá meira