Körfubolti

Hayward ökklabrotnaði hræðilega eftir fimm mínútur í fyrsta leiknum fyrir Boston

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gordon Hayward á sjúkrabörunum.
Gordon Hayward á sjúkrabörunum. vísir/getty
Gordon Hayward ökklabrotnaði eftir aðeins fimm mínútna leik þegar Boston Celtics tapaði 102-99 fyrir Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í nótt.

Þetta var fyrsti leikur Haywards með Boston eftir vistaskiptin frá Utah Jazz í sumar.

Meiðslin voru skelfileg en Hayward lenti illa, ökklinn gaf sig og fór nánast í tvennt.

Leikmönnum liðanna var greinilega brugðið og þeir sem voru næst Hayward gripu fyrir andlitið. Samherjar Haywards báðu svo fyrir honum.

„Þetta er hart. Ég hef séð slæm meiðsli og fengið að kynnast þeim sjálfur,“ sagði Kyrie Irving, samherji Haywards.

Hann sagði að meiðsli Haywards væru þau verstu sem hann hefði orðið vitni að, ásamt meiðslunum skelfilegu sem Paul George varð fyrir á æfingu bandaríska landsliðsins árið 2014.

George sendi Hayward kveðju á Twitter í nótt og bað guð að blessa hann.

LeBron James, sem átti stórleik fyrir Cleveland, sendi Hayward batakveðjur eftir leikinn í nótt.

„Hugsanir mínar og bænir fara til fjölskyldu Haywards. Vonandi jafnar hann sig fljótt og vel á þessu,“ sagði James sem skoraði 29 stig, tók 16 fráköst og gaf níu stoðsendingar.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×