Körfubolti

Endaði á spítala eftir slagsmál við samherja

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nikola Mirotic er ein af aðalstjörnum Chicago Bulls.
Nikola Mirotic er ein af aðalstjörnum Chicago Bulls. vísir/getty
Nikola Mirotic, leikmaður Chicago Bulls, endaði á spítala eftir slagsmál við samherja sinn, Bobby Portis.

ESPN greinir frá því að Mirotic og Portis hafi lent saman á æfingu í gær. Mirotic réðist tvisvar á Portis sem brást hinn versti við og kýldi spænska landsliðsmanninn í andlitið.

Bobby Portis verður væntanlega refsað fyrir að kýla Mirotic.vísir/getty
Mirotic lá í gólfinu í nokkrar mínútur áður en hann stóð upp. Seinna kom í ljós að hann er með brákað kinnbein auk þess sem hann fékk heilahristing. Líklegt er að hann þurfi að gangast undir aðgerð.

Mirotic, sem hefur verið í herbúðum Chicago síðan 2014, skoraði 10,6 stig og tók 5,5 fráköst að meðaltali í leik á síðasta tímabili.

Hinn 22 ára gamli Portis var með 6,8 stig og 4,6 fráköst að meðaltali í leik í fyrra.

Búist er við því að Chicago verði í hópi lélegustu liða NBA-deildarinnar í vetur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×