Chelsea kastaði frá sér sigri gegn Roma

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
David Luiz skorar fyrsta mark leiksins.
David Luiz skorar fyrsta mark leiksins. vísir/getty
Chelsea og Roma gerðu jafntefli, 3-3, í skrautlegum leik í Lundúnum í kvöld.

Chelsea spilaði frábærlega í fyrri hálfleik og komst í 2-0. Þá hætti liðið og Roma gekk á lagið. Skoraði þrjú mörk í röð og komst í 2-3.

Edin Dzeko með seinni tvö mörkin. Hans fyrstu gegn Chelsea á ferlinum í tíu leikjum. Valdi góðan tíma til þess. Chelsea vaknaði við þriðja markið og Eden Hazard jafnaði skömmu síðar í 3-3. Í hönd fóru æsispennandi lokamínútur.

Þrátt fyrir nokkuð lipur tilþrif þá tókst liðunum ekki að bæta við og eitt stig á leið. Chelsea er á toppi C-riðils með 7 stig en Roma er í öðru sæti með 5.





Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira