Glamour

Stjörnurnar mættu á Erdem x H&M í L.A

Ritstjórn skrifar
Mynd: H&M
Erdem x H&M línunni var fagnað á fallegan hátt í Los Angeles í gærkvöldi. Salnum hafði verið breytt í enskan blómagarð þar sem bæði raunverulegar og súrrealískar plöntur þöktu umhverfið og tískupallinn. 

Stjörnur á borð við Alexa Chung, Kate Bosworth, Kirsten Dunst og Zendaya Coleman voru mættar og voru að sjálfsögðu klæddar fatnað úr línunni. Umhverfið undirstrikaði rómantík og fegurð línunnar, og voru litir og blóm allsráðandi. 

Fallegt umhverfi og ótrúlega falleg lína frá Erdem x H&M. Við hreinlega getum ekki beðið eftir að bera línuna augum, en hún kemur í H&M í Smáralind þann 2. nóvember næstkomandi. 

Ann-Sofie Johanson
Erdem Moralioglu
Baz Luhrmann, Catherine Martin, Ann-Sofie Johansson, Erdem Moralioglu





×