Fótbolti

Sjáðu öll 100 Evrópumörk Messi | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi fagnar tímamótamarki sínu í gær.
Lionel Messi fagnar tímamótamarki sínu í gær. vísir/getty
Lionel Messi varð í gær annar leikmaðurinn til að skora 100 mörk mörk í Evrópukeppnum.



Messi skoraði eitt marka Barcelona í 3-1 sigri á Olympiacos í Meistaradeild Evrópu.

Fyrsta Evrópumark Argentínumannsins kom einnig gegn grísku liði, Panathinaikos, þann 2. nóvember 2005. Þá var Messi aðeins 18 ára gamall.

Cristiano Ronaldo skoraði sitt 100. Evrópumark á síðasta tímabili og varð þar með sá fyrsti til að afreka það. Messi hefur nú bæst í þennan fámenna en góðmenna hóp.

Í tilefni af þessum merka áfanga Messi birti UEFA myndband með öllum 100 mörkum hans á YouTube-síðu sinni í gær. Það má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×