Innlent

Mikil tæring í leiðslum, veltitanki og vinnuþilfari Bjarna Sæmundssonar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ljóst er að viðgerð á skipinu mun taka margar vikur segir í tilkynningu Hafró.
Ljóst er að viðgerð á skipinu mun taka margar vikur segir í tilkynningu Hafró. Vísir/Pjetur.
Mikil tæring er í leiðslum, veltitanki og vinnuþilfari rannsóknaskips Hafrannsóknastofnunar, Bjarna Sæmundssonar, og veldur tæringin leka í tanki skipsins.

Við lekann komst vatn í olíu en vegna þessa ástands skipsins hefur það ekki komist af stað í rannsóknaleiðangur sem hefjast átti í liðinni viku. Átti meðal annars að kanna ástand rækju og smásíldar, gera umhverfisrannsóknir í fjörðum og veiðarfæratilraunir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun þar sem segir að skipið sé orðið 47 ára gamalt en það var smíðað í Þýskalandi árið 1970.

„Í september sl. bilaði stjórntölva fyrir eina af vélum skipsins. Stýrisbúnaður og aðalvélar skipsins voru endurnýjaðar árið 2004 og reyndust varahlutir vera ófáanlegir, en unnt var að gera við til bráðabirgða. Sú bilun tafði loðnuleiðangur sem átti að hefjast snemma í september og fyrirséð var að tafir yrðu einnig á næsta leiðangri skipsins.

 

Ljóst er að viðgerð á skipinu mun taka vikur. Stofnunin hefur þegar tekið skip á leigu til að sinna rækjurannsóknum og hluta umverfisrannsókna. Hægt er að mæla síld fram eftir vetri og er stefnt að því eftir áramót. Þetta þýðir viðbótarkostnað vegna leigu skips og kostnaðar við viðgerðina, auk annars óhagræðis.

 

Þegar aðalvélar Bjarna Sæmundssonar voru endurnýjaðar árið 2004 var fyrirhugað að gera skipið út í 10-12 ár til viðbótar. Mjög brýnt er að fá fram ákvörðun um nýtt skip þar sem ekki er lengur hægt að treysta á Bjarna. Fjármagni sem varið er í viðgerðir á tæplega hálfrar aldar gömlu skipi er ekki sérstaklega vel varið,“ segir í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×