Íslenski boltinn

Rúnar byrjaður að styrkja KR-liðið | Kristinn og Björgvin í KR

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristinn Jónsson kemur frá Breiðbliki en Björgvin Stefánsson frá Haukum.
Kristinn Jónsson kemur frá Breiðbliki en Björgvin Stefánsson frá Haukum. Mynd/Twtter-síða KR
Rúnar Kristinsson nýráðinn þjálfari KR er byrjaður að styrkja liðið sitt fyrir komandi tímabil í Pepsi-deildinni en KR-ingar sömdu í dag við bakvörðinn Kristinn Jónsson og framherjann Björgvin Stefánsson.

Kristinn Jónsson kemur frá Breiðbliki en Björgvin Stefánsson frá Haukum.  KR-ingar framlengdu líka samninga sína við þá Óskar Örn Hauksson og Skúla Jón Friðgeirsson.  Allir þrír gerðu þeir þriggja ára samning við Vesturbæjarliðið. Það eru liðin tólf ár síðan að Óskar Örn Hauksson kom fyrst í KR.



Kristinn Jónsson er 27 ára sókndjarfur vinstri bakvörður sem var á sínum tíma í kringum íslenska A-landsliðið og spilaði síðast með landsliðinu á móti Mexíkó í febrúar síðastliðnum.

Kristinn Jónsson hefur spilað allan ferill sinn á Íslandi með Breiðabliki en hann kom í Kópavoginn um mitt síðasta sumar og kláraði tímabilið með Blikum í Pepsi-deildinni.

Kristinn lék átta leiki með Blikum í sumar og var með eina stoðsendingu. Sú stoðsendingu var fyrir sigurmark Blika á móti ÍBV en mark Sveins Arons Guðjohnsen gulltryggði endanlega sæti Breiðabliksliðsins í Pepsi-deildinni.

Kristinn hafði þar áður spilað með norsku liðunum Sarpsborg 08 og Sogndal eftir að hann yfirgaf Blikarna eftir 2015-tímabilið. Kristinn var stoðsendingakóngur Pepsi-deildarinnar 2015.

Blikar lánuðu Kristinn til sænska liðsins Brommapojkarna sumarið 2014 en hann hann hefur alls spilað 148 leiki fyrir Blika í efstu deild og er einn leikjahæsti maður félagsins frá upphafi.

Björgvin Stefánsson er 23 ára framherji sem hefur raðað inn mörkum í b-deildinni síðustu ár en á enn eftir að sanna sig í Pepsi-deildinni.

Björgvin Stefánsson var næstmarkahæsti leikmaður Inkasso-deildarinnar í sumar en hann skoraði þá 14 mörk í 19 leikjum með Haukum.

Hann skoraði hinsvegar bara 2 mörk í 16 leikjum með Haukum og Þrótti í Pepsi-deildinni 2016 eftir að hafa markakóngur b-deildarinnar með 20 mörk í 22 leikjum sumarið 2015.

Björgvin kom til Rúnars á reynslu í Noregi þegar Rúnar var þjálfari Lilleström-liðsins og Rúnar var hrifinn af því sem hann sýndi honum þar. Rúnar talað um það á blaðamannafundi í dag að hann væri viss um að Björgvin gæti staðið sig í Pepsi-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×