Nýliðarnir unnu United | Sjáðu mörkin

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Nýliðar Huddersfield unnu óvæntan sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

United hafði aðeins verið undir í tvær mínútur það sem af er tímabilinu í deildinni þangað til á 28. mínútu leiksins í dag þegar Aaron Mooy skoraði eftir að United vörnin sofnaði á verðinum.

Aðiens fimm mínútum síðar bætti Laurent Depoitre við öðru marki Huddersfield eftir hörmuleg mistök Victor Lindelöf í vörninni.

Lindelöf hafði komið inn fyrir Phil Jones sem meiddist snemma leiks.

Marcus Rashford náði að klóra í bakkann fyrir United eftir sendingu frá Romelu Lukaku á 78. mínútu, en það dugði ekki til og nýliðarnir fóru með 2-1 sigur.

Huddersfield fer með sigrinum upp í tíunda sæti deildarinnar. United situr enn í öðru sætinu, en er nú fimm stigum á eftir grönnunum í City.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira