Auðvelt hjá Real

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty
Spánarmeistarar Real Madrid fóru létt með Eibar í La Liga deildinni á Spáni í kvöld.

Paulo Oliviera varð fyrir því óláni að skora sjalfsmark eftir hornspyrnu á 18. minútu leiksins og Marco Asensio tvöfaldaði svo forystu Real tíu mínútum seinna.

Leikmenn Eibar misstu fljótt trúna á verkefninu og réðu stórstjörnur Real lofum og lögum á vellinum og hefði í raun mátt flauta leikinn af í hálfleik, það var engin von fyrir Eibar að komast aftur inn í hann.

Eftir tíðindalítinn seinni hálfleik skoraði Marcelo eftir sendingu frá Theo Hernandez og algjörlega innsyglaði sigurinn fyrir Real.

Real endurheimti með sigrinum þriðja sæti deildarinnar af grönnum sínum í Atletico, en fimm stig eru upp í Barcelona á toppnum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira