Sport

NFL-þríhöfði á Stöð 2 Sport

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tom Brady verður í beinni klukkan 17.00 í dag.
Tom Brady verður í beinni klukkan 17.00 í dag. vísir/getty
Aðdáendur NFL-deildarinnar fá mikið fyrir sinn snúð á Stöð 2 Sport í dag er hægt verður að horfa á leiki úr deildinni frá 13.30 og fram að miðnætti.

Stöð 2 Sport hefur leik í London klukkan 13.30 þar sem Miami Dolphins spilar við New Orleans Saints. Þetta er annar leikurinn af fjórum sem fara fram í London á þessari leiktíð.

Klukkan 17.00 verða svo meistarar New England Patriots í beinni gegn sterku liði Carolina Panthers. Það er búist við mögnuðu einvígi á milli leikstjórnendanna Tom Brady og Cam Newton.

Lokaleikur dagsins er svo klukkan 20.20 og hann er ekki síður áhugaverður. Þá tekur Denver Broncos á móti Oakland Raiders. Bæði lið hafa farið vel af stað og eru líklega til afreka á þessari leiktíð.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×