Bakþankar

Aðgerða er þörf

Benedikt Bóas skrifar
Bestu og efnilegustu leikmenn liðanna í Pepsi-deild karla og kvenna voru verðlaunaðir á laugardag. Það var ekki á neinu sérstöku KSÍ hófi eða neitt slíkt. Nei, Andri Rúnar fékk sín verðlaun eftir leikinn gegn Fjölni. Agla María og Alex Þór fengu sín verðlaun á lokahófi Stjörnunnar og borgarstjórinn, Stephany Mayor, fékk sinn verðlaunabikar eftir leik Þórs/KA og FH.

KSÍ er hætt að halda hóf fyrir liðin og þetta hefur farið úr risastóru partýi á Hótel Íslandi niður í verðlaunaafhendingu í Háskólabíói og í það að KSÍ dreifi verðlaunum eins og áður er upptalið.

Þetta finnst mér dapurt. Það er engin uppskeruhátíð fyrir fótboltamenn og -konur þessa lands. Það er bara eitthvert lokahóf haldið innan félaganna. Í hinum boltaíþróttunum eru vegleg lokahóf. Og þar er alveg geggjað gaman.

Persónulega sé ég ekki vandamálið. Vissulega var verið að rukka einhverja tugi þúsund kalla fyrir miða hér í gamla daga en þetta voru kvöld sem maður mundi eftir. Allavega svona oftast.

Þetta þarf heldur ekkert að vera svo dýrt. Bara rífa upp símann og hringja í Hannes hjá KKÍ eða Róbert hjá HSÍ og segja: Strákar, hvernig gerið þið þetta?

Eins og þetta blasir við mér er þetta enn eitt dæmið sem sýnir að KSÍ er svo fjarlægt hinum venjulega fótboltamanni. Er bara eitthvert bákn í Laugardal.

Með enga tengingu til hins almenna áhorfanda eða fótboltamanns.

Enda sýnir mætingin á völlinn í sumar að aðgerða er þörf. Það er varla hægt að gefa miða á völlinn til að ná upp í þúsund manns.

Eins gott að það séu sjö mánuðir í að næsta tímabil hefjist. Ég bíð spenntur eftir því hvernig á að bregðast við þannig að það verði stuð og stemning í stúkunni.






×