Innlent

Aflýsa almannavarnaástandi á Austurlandi

Kjartan Kjartansson skrifar
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna sem lýst var yfir 28. september síðastliðinn vegna úrkomu og vatnavaxta þar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan á Austurlandi birtir á Facebook-síðu sinni.

Dregið hefur úr vatnavöxtum og almenn skriðuhætta er talin liðin hjá. Áfram er þó fylgst vel með þekktum skriðusvæðum í umdæminu, að því er segir í tilkynningunni.

Hringvegurinn rofnaði, skemmdir urðu á brúm, sauðfé drapst og skriður féllu í vatnavöxtunum sem hófust á suðaustanverðu landinu í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×