Tónlist

Vínylplatan lifir enn góðu lífi

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Addi Intro keypti sína fyrstu plötu fyrir flöskupening.
Addi Intro keypti sína fyrstu plötu fyrir flöskupening. Vísir/Ernir
Lífið heyrði í þremur söfnurum vínylplatna en sala á þeim hefur risið síðustu ár. Sum safnanna byrjuðu bara sem eðlileg plötukaup á þeim tíma sem ekkert annað var í boði, sum vegna atvinnu en öll eru þau ákveðið form áráttu.

Addi Intro

Hvenær og hvers vegna byrjaðirðu að safna?

„Áhugi minn á að kaupa og safna vínyl blossaði upp í kringum 11-12 ára aldurinn. Stóri bróðir skólafélaga míns var eigandi hinnar goðsagnakenndu verslunar Þruman sem var aðalstaðurinn til að uppgötva nýjar stefnur á tíunda áratugnum. Techno, Oldschool Hardcore, House, Break Beat, Hip Hop og bara allan andskotann var að finna þarna. Minnir að fyrsta platan sem ég keypti fyrir flöskupeninga hafi verið 12" frá Reinforced útgáfunni með Agzilla & Dj L.S.K. Henni var síðan stolið af mér 7 árum seinna.“

Hvað áttu margar plötur?

„Ég á alls ekki margar plötur í dag. Fór yfir safnið mitt fyrir tveimur árum og losaði mig við sirka 75 prósent af því sem ég átti. Hélt bara plötum sem mér fannst virkilega góðar og nenni ennþá að hlusta á. Ég er svo byrjaður aftur að safna – held ég eigi í kringum 300 stykki í dag.“

Hvað er það sem þú leitar eftir við plötukaupin?

„Fyrst og fremst góðri tónlist. Hvaða stefnur sem er. Panta mikið á netinu en svo er maður alltaf í Lucky Records að gramsa og „chilla“ svo það fer bara eftir því hvað er til þann daginn. Stundum er ég að leita eftir einhverju til að „sampla“, stundum bara einhverju sem ég vil geta sett á fóninn heima í góðu „chilli“. Mjög „random“ í rauninni.“

Hvað myndirðu halda að þú hafir eytt miklum pening í safnið?

„Úff. Alveg frá byrjun... meira en milljón. Ekki alveg viss bara. Þori bara varla að hugsa út í það.“

Hver er þín uppáhaldsplata?

„Held ég eigi enga eina uppáhalds þar sem ég á svo margar stefnur í safninu. En Welcome 2 Detroit með J-Dilla get ég alltaf hlustað á.“

Natalie hefur ekki tölu á plötufjöldanum, en segist eiga alltof margar. Vísir/Stefán

Natalie Gunnarsdóttir

Hvenær og hvers vegna byrjaðirðu að safna? 

„Ég byrjaði að safna seint á síðustu öld. Ég byrjaði að safna plötum af því að ég hef og hafði óbilandi áhuga á tónlist og mig langaði að gera eitthvað meira en bara að hlusta.“

Hvað áttu margar plötur? 

„Það er eitthvað sem ég hreinlega hef ekki hugmynd um. En heiðarlegt svar er: alltof margar.“

Hvað er það sem þú leitar eftir við plötukaupin? 

„Ég er alltaf að leita eftir einhverju nýju og spennandi. Ég hlusta á allt nema háskólarokk þannig að bilið er breytt. Ég kaupi mikið af klassík fyrir heimahlustun, svo fer það bara eftir stemningunni þann daginn.“

Hvað myndirðu halda að þú hafir eytt miklum pening í safnið? 

„Guð minn almáttugur! Næsta spurning.“

Hver er þín uppáhaldsplata? 

„Þú spyrð ekki um lítið. Ætli það verði ekki að vera tólf tomman Clare de lune eftir Debussy. Sú plata á alltaf ákveðinn stað í hjarta mínu.“

Ingvar rekur plötubúðina Lucky Records þannig að það má segja að plöturnar séu líf hans, en sjálfur á hann í kringum sjö þúsund plötur. Vísir/Anton Brink

Ingvar Geirsson

Hvenær og hvers vegna byrjaðirðu að safna? 

„Sirka í kringum 85-86 og byrjar ekki sem safn heldur það form sem var í boði þá. Svo vex fjöldinn og fer að flokkast undir það að safna einhverju.“

Hvað áttu margar plötur? 

„Í kringum 7 þúsund.“

Hvað er það sem þú leitar eftir við plötukaupin? 

„Um þessar mundir kaupi ég nánast bara nýjar plötur – en geta verið endurútgáfur eða safnplötur frá aðallega sjöunda og áttunda áratugnum. En ég fylgist vel með öllu nýju í afró-funk-soul-reggae-hip hop og raftónlist. Hellingur í gangi.“

Hvað myndirðu halda að þú hafir eytt miklum pening í safnið? 

„Bæði miklum pening og tíma. Það er erfitt að negla niður tölu.“

Hver er þín uppáhaldsplata? 

„Mjög margar uppáhalds en nokkrar sem eru í mikilli spilun þessa daga eru:

Epic Rain - Dream Sequences sem Lucky Records var að gefa út á vínyl og geisladisk.

Mop Mop - Isle of Magic

Cosmic Analog Ensemble - Les Sourdes Oreilles

Black Flower - Artifacts

Scientist- Introducing Scientist (endurútgáfa af fyrstu Scientist).“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×