Erlent

MH370: Óásættanlegt að finna ekki flugvélina

Samúel Karl Ólason skrifar
Þegar leitinni lauk hafði verið leitað á rúmlega 120 þúsund ferkílómetra svæði.
Þegar leitinni lauk hafði verið leitað á rúmlega 120 þúsund ferkílómetra svæði. Vísir/EPA
Ástralskir rannsakendur sem leitað hafa að malasísku flugvélinni MH370 segja óásættanlegt að finna ekki flugvélina. Hún hvarf árið 2014 á leið frá Kuala Lumpur til Peking með 239 manns um borð. Talið er að flugvélin hafi endað í Indlandshafi, sem er langt úr leið flugvélarinnar en ekkert er vitað um hvað gerðist um borð.

Rannsakendurnir, sem skiluðu af sér lokaskýrslu sinni til yfirvalda í Ástralíu, segjast miður sín yfir því að flugvélin hafi ekki fundist. Þrátt fyrir mjög umfangsmikla leit.

„Það er nánast ómögulegt og algerlega óásættanlegt á þessari öld þegar tíu milljónir farþega ganga um borð í flugvél á degi hverju. Að stærðarinnar farþegaflugvél geti horfið án þess að heimurinn geti sagt með vissu hvað varð um flugvélina og þá sem voru um borð.“

Þetta kom fram í yfirlýsingu frá nefndinni.



Samkvæmt frétt BBC er leitin að MH370 ein sú stærsta í sögu flugsins. Eftir 52 daga leit á yfirborði sjávar brugðu rannsakendur á það ráð að leita á botni Indlandshafsins. Þegar leitinni lauk hafði verið leitað á rúmlega 120 þúsund ferkílómetra svæði.



Þá hefur brak rekið á land á eyjum í Indlandshafi og á austurströnd Afríku, sem talið er koma úr flugvélinni. Leitarsvæðið í Indlandshafi var fundið með því að greina gervihnattagögn og hafstrauma.

Leitinni hefur verið hætt og yfirvöld í Ástralíu segja að hún muni eingöngu hefjast aftur ef „trúverðug sönnunargögn“ finnist.

Fram hefur komið að gögn fundust á tölvu flugstjóra flugvélarinnar sem sýna að hann hafi æft það að fljúga svipaða leið og talið er að MH370 hafi verið flogið. Í frétt Reuters segir að rannsakendur telji svo til gott sem ómögulegt að hægt verði að varpa ljósi á hvað gerðist án þess að finna flugvélina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×