Innlent

Yfir á rauðu á öðru hverju ljósi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar þar sem framkvæmdir stóðu yfir í sumar.
Frá gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar þar sem framkvæmdir stóðu yfir í sumar. Lögreglan
Margir virða ekki umferðarreglur og fara yfir á rauðu ljósi. Þetta eru niðurstaða athugunar sem VÍS gerði á tveimur fjölförnum gatnamótum á dögunum. Athugunin var gerð á annatíma, að morgni og síðdegis, og sýndi að farið var yfir á rauðu á öðru hverju ljósi að jafnaði. Svo segir í tilkynningu frá VÍS.

Skoðunin fór fram við gatnamót Fjallkonuvegar og Gullinbrúar í Grafarvogi og á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar. Í annað hvert skipti sem rautt ljós kom í Grafarvogi ók einhver yfir á rauðu, samtals sautján ökumenn. Hlutfallið var aðeins betra á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar eða 45%. Þar voru 53 ökutæki sem fóru yfir á rauðu þann tíma sem fylgst var með umferðinni.

Árið 2016 voru um hundrað umferðarslys tilkynnt til VÍS þar sem ökumaður hafði ekið yfir á rauðu. Það er hærra hlutfall en 10 ára meðaltal sýnir sem er um 80 slys á ári. Hraði ökutækja er oft nokkur í þessum slysum, alvarleiki þeirra oft töluverður og sök þess sem fer yfir á rauðu algjör.

Sekt við akstri yfir á rauðu ljósi er 15 þúsund krónur ásamt tveimur punktum í ökuferilskrá. Ef allir sem fóru yfir á rauðu þann tíma sem kannanirnar voru gerðar hefðu verið sektaðir hefði heildarupphæðin hljómað uppá rúma milljón krónur.

Þá upphæð væri hægt að tvöfalda ef tillögur, sem eru til skoðunar hjá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, verða samþykktar en þá verður sekt vegna aksturs gegn rauðu ljósi hækkuð upp í þrjátíu þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×