Bílar

Polo verður fullorðinn

Finnur Thorlacius skrifar
Polo hefur lengst um 8 sentimetra á milli kynslóða.
Polo hefur lengst um 8 sentimetra á milli kynslóða.
Volkswagen Polo hefur verið í framleiðslu hjá Volkswagen síðan árið 1975 og hefur selst í yfir 14 milljónum eintaka. Eins og oft vill verða með nýjar kynslóðir bíla hefur Polo stækkað og er nú orðinn nokkru stærri bíll en fyrstu kynslóðir Volkswagen Golf. Polo lengist nú um 8 sentimetra, breikkar en lækkar þó til þaksins. Hjólhafið lengist þó meira en heildarlenging bílsins og er nú 9,2 cm lengra á milli hjóla. Skottrými Polo stækkar líka heilmikið, eða um 71 lítra.

Einna athygliverðast með nýja kynslóð bílsins er að nú má fá hann með stafrænu mælaborði og minnist greinarritari ekki að slíkt sé fáanlegt í öðrum svo smáum bíl. Reyndar var fyrsti bíllinn sem undirritaður sá með stafrænu mælaborði lúxusbílinn Jaguar XJ fyrir um 7 árum, en sá fyrsti sem ekki telst til lúxusbíla Volkswagen Passat fyrir ríflega 2 árum. Þetta er til marks um það að tækni sem þótti stefnumarkandi og sáust fyrst í rándýrum lúxusbílum fyrir nokkrum árum er nú komin í smábíla. Annað óvenjulegt við Polo nú er að hann má fá með 300 watta hljóðkerfi og telst það ekki heldur algengt fyrir smábíla að hugað sé svo vel að hljóðkerfinu. 

 

Polo hefur verið í framleiðslu hjá Volkswagen síðan árið 1975 og hefur selst í yfir 14 milljónum eintaka.
Átta vélarkostir

Það verður ekki annað sagt en Volkswagen hafi lukkast vel við endurhönnun Polo, hann er í raun hrikalega laglegur smábíll, nú með örlítið hvassari línum og sportlegri. Polo mun nú aðeins fást með 5 hurðum og 3 hurða útgáfan horfin. Vélarúrvalið í Polo spannar allt frá 65 hestafla vél til 200 hestafla í GTI útfærslu hans. Með 1,0 lítra vél má fá hann í 65, 75 og 95 hestafla útgáfum og sú öflugasta þeirra með forþjöppu. 

Seinna meir mun Polo bjóðast með 115 hestafla útgáfu með sömu 1,0 lítra vél. Allar 1,0 lítra vélarnar eru þriggja strokka. Þá verður einnig í boði 150 hestafla 1,5 lítra og fjögurra strokka vél. Vélin í tilvonandi GTI útgáfunni verður 2,0 lítrar og 200 hestöfl og er sá bíll aðeins 6,7 sekúndur í hundraðið. Þá verður einnig í boði metanútgáfa Polo, 90 hestöfl og 1,0 lítra TGI vél. Tvær dísilvélar eru í boði, báðar 1,6 lítrar og 80 og 95 hestöfl. Það verður því um mikið vélarúrval að ræða fyrir kaupendur Polo. Velja má milli beinskiptingar og frábærrar DSG-sjálfskiptingar.

 

Polo er allur hinn vandaðasti að innna, sem við má búast frá Volkswagen.
Mikið aukið innanrými

Með 8 cm lengri bíl og 9,2 lengra á milli hjóla hefur innanrými bílsins eðlilega aukist mjög mikið og fer nú hrikalega vel um aftursætisfarþega, sem og þá sem framí sitja. Þegar komið er þó inní bílinn vekur samt mesta kátínu að sjá TFT 8 tommu active info skjáinn fyrir miðju mælaborðsins sem leysir af hólmi takkager fyrri kynslóðar. Eins og títt er með Volkswagen bíla er innréttingin bæði falleg, sérlega stílhrein og gerð úr vönduðum hráefnum. Allt virðist ferlega vel smíðað og sterklegt. Þessi innrétting á greinilega að endast og það gera þær vanalega í Volkswagen bílum. 

Eins og gríðarlegt vélarúrvalið þá má velja um 5 mismunandi gæði innréttingarinnar, allt eftir því sem menn tíma í slíkt og munar þar talsverðu í verði. Volkswagen Polo er furðu vel búinn bíll tæknilega og má nefna aðstoðarkerfi líkt og framskynjara með vöktun á gangandi vegfarendum, blindsvæðaskynjara og bílastæðahjálp, sem þó er valbúnaður. Upplýsinga- og afþreyingarkerfi eru líka til fyrirmyndar. Ef undan einhverju á að kvarta fannst mér útsýnið út úr framrúðunni skert, þaklínan of neðarlega og of fyrirferðarmiklir A-póstar. Einnig er plastnotkunin á stokknum milli framsætanna fremur fátækleg.

 

Alls bjóðast 8 vélarkostir í Polo.
Góður akstursbíll og hljóðlátur

Eins og við mátti búast er akstur nýs Polo fágaður og góður og í raun fannst mér alltaf eins og ekið væri á Golf, en það er ekki leiður samanburður. Bíllinn er þéttur og stífur, enda stífni yfirbyggingingarinnar mikið aukin milli kynslóða. Fjöðrunin er afar vel stillt og það gleður mjög farþega hvað bíllinn er hljóðlátur. Mjög auðvelt er að fara hratt í beygjurnar á þessum Polo og hann hallar sér afar lítið til hliðar við það. Aksturseiginleikar þessa bíls eru afar hentugir til borgaraksturs og enn skemmtilegri er aksturinn ef flýta skal sér milli borgarhluta. 

Nýr Polo með mjög aukið hjólhaf er þó orðinn miklu hæfari bíll til aksturs í lengri ferðum og liggur eins og klessa á þjóðvegunum. Þessir góðu eiginleikar plús allt það ágæta rými sem nú finnst í Polo, fyrir bíl sem kostar á bilinu rúmar tvær milljónir til um þriggja milljóna eftir vélarkosti og innréttingu, hljómar bara ansi vel. Það að eiga smábíl, eins og Polo er skilgreindur, er ekki eins og að eiga smábíl hér áður fyrr. Akstur og hegðun þessa bíls býður uppá ekkert verri tilfinningu en í mörgum öðrum bíl í milistærðarflokki. Ekki slæmt það. Von er á nýjum Polo bráðlega í haust í Heklu.  

 

Skottrými Polo stækkar líka heilmikið, eða um 71 lítra.
Kostir: Útlit, innanrými, aksturseiginleikar, hljóðlátur

Ókostir: Útsýni gegnum framrúðu, plastnotkun í stokki milli framsæta

1,0 lítra bensínvél, 95 hestöfl

Framhjóladrif

Eyðsla: 4,6 l./100 km í bl. akstri

Mengun: 105 g/km CO2

Hröðun: 10,8 sek.

Hámarkshraði: 170 km/klst

Verð frá: 2.390.000 kr.

Umboð: Hekla

Bíllinn er þéttur og stífur, enda stífni yfirbyggingingarinnar mikið aukin milli kynslóða. Flottur akstursbíll.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×