Menning

Bein útsending: Baltasar Kormákur ræðir um kvikmyndaborgina Reykjavík

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Baltasar Kormákur er á meðal frummælenda á málþingi RIFF um kvikmyndaborgina Reykjavík.
Baltasar Kormákur er á meðal frummælenda á málþingi RIFF um kvikmyndaborgina Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur er á meðal frummæleda á málþingi um kvikmyndaborgina Reykjavík sem haldið er í Norræna húsinu í dag og hefst klukkan 15. Á málþinginu verður það skoðað hvaða möguleikar eru í boði fyrir Reykjavíkurborg sem tökustaður fyrir erlendar kvikmyndir og sjónvarpsþættir.

Málþingið er hluti af dagskrá RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, en aðrir frummælendur eru Leon Forde, sem rannsakar áhrif kvikmynda á komu ferðamanna til viðkomandi staða (screen tourism); Thomas Gammeltoft, sem stýrir kvikmyndastjóri í Kaupmannahöfn sem styrkir eingöngu myndir sem teknar eru í borginni; Sveinn Birkir Björnsson, frá Film in Iceland, og Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra.

Við pallborðið sitja m.a. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri; Kristinn Þórðarson, formaður SÍK; Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrum iðnaðarráðherra; Thierry Potok, stjórnarformaður ISOLD, framleiðandi og fyrrum forstjóri Babelsberg kvikmyndaversins í Berlín og MPN kvikmyndaversins í Köln.

Umræðustýra er Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Málþingið fer fram á ensku og má fylgjast með því í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×